Verum bleik - fyrir
okkur öll

Sögur kvenna eru viðtöl við konur sem greinst hafa með krabbamein sem miðla sinni sögu með það að leiðarljósi að aðstoða aðrar konur í sömu sporum. Einlægar og upplýsandi frásagnir hvernig er að ganga í gegnum krabbameinsmeðferðir og mikilvægi vinahópa og aðstandenda í því ferli. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni. Sýnum samstöðu gegn krabbameinum í konum og verum bleik í október. Verum bleik – fyrir okkur öll.
Spila auglýsingu

Bleiki dagurinn verður 20. október. Taktu daginn frá!

00 Dagar
00 Klukkustundir
00 Mínútur
00 Sekúndur

Bleikar fréttir

14. desember 2023 : Bleikasta slaufan sló í gegn

Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir, hönnuðir Bleiku slaufunni 2023, afhentu Krabbameinsfélaginu 13.475.000 krónur sem söfnuðust með sölu á Sparislaufunni.

Lesa meira

14. desember 2023 : Metta Sport styrkir Bleiku slaufuna um 1.432.064 kr.

Krabbameinsfélagið þakkar Metta Sport og viðskipavinum kærlega fyrir stuðninginn, hann skiptir svo sannarlega máli.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Við þurfum að þora að stíga fram og segja frá því hvernig okkur líður

Josina Wilhelmina Bergsøe er skartgripahönnuður, rithöfundur og fyrirlesari með persónulega reynslu af langvinnum og síðbúnum aukaverkunum eftir krabbamein. Josina greindist með brjóstakrabbamein árið 2010 og hefur frá þeim tíma unnið markvisst að því að auka skilning á veruleika þeirra sem greinast með krabbamein. Hún hefur einnig verið ötul talskona þess að auka sýnileika sjúkdómsins í samfélaginu og breyta staðalímyndum um krabbameinssjúklinga. Við ræddum við Josinu um lífið eftir krabbamein, sem hún tekst á við af næmni og með húmor og lífsgleði að leiðarljósi.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Hagkaup styrkir Bleiku slaufuna um 2 milljónir

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok október af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna sem söfnuðust til styrkar Bleiku slaufunni í versl­un­um fyr­ir­tæk­is.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : 2,2 milljónir frá Orkunni til Bleiku slaufunnar

Saman söfnuðu, Orkan og viðskiptavinir 2,2 milljónum króna handa Bleiku slaufunni. Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhópi Bleiku slaufunnar gáfu 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Orkan jafnaði síðan upphæðina sem viðskiptavinir söfnuðu. Auk þess runnu 5 krónur af öllum seldum lítrum á Bleika daginn til átaksins.

Lesa meira

Sjá allar fréttir og viðburði


6.115

er árlegur meðalfjöldi þeirra skipta sem ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita stuðning og ráðgjöf.

916

er fjöldi þeirra kvenna sem greinist árlega með krabbamein hérlendis.

455

milljónum veitt úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 47 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2023.

Stöndum saman og virkjum vináttuna!

Vilt þú vinna vinkonuferð í Bláa lónið?
Þátttaka kvenna á Íslandi í skimun fyrir krabbameinum hefur minnkað síðustu ár og hvetjum við ykkur til að fá vinkonur ykkar til að mæta í skimun. Því eitt er víst að samstöðukraftur kvenna er magnaður. Það sýna vinkonuhópar sem halda hópinn, jafnvel svo áratugum skiptir, í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning á erfiðum stundum og hvatningu þegar á þarf að halda. Skráðu þig í vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar og ein heppin vinkona verður dregin út og getur unnið ferð í Bláa Lónið ásamt flotmeðferð og flothettu fyrir 6 vinkonur!


Skráðu þig

Bleika slaufan 2023

Bleika slaufan í ár hönnuð af gullsmíðameisturunum Lovísu Halldórsdóttur Olesen og Unni Eir Björnsdóttur


Vinir slaufunnar

FlyOver Iceland

Selja bleika miða á heimasíðu og í FlyOver Iceland til styrktar Bleiku slaufunni.

Perform

PERFORM styrkir Bleiku Slaufuna með 10% af sölu af völdum vörum ásamt 6.000 kr. af  hverjum seldum Hrökaleg pakka til heiðurs Hrannar Sigurðardóttur.

Raforkusalan Straumlind

Nýsköpunar- og orkufyrirtækið Straumlind styrkir Bleiku slaufuna um 1.000 kr. fyrir hverja skráningu sem berst á tímabilinu 20. til og með 27. október. 

Hafið

Hafið Fiskverslun gefur 15% af sölu á rétti mánaðarins til styrktar Bleiku slaufunni.

Hafið rekur tvær verslanir, önnur er staðsett í Spönginni Grafarvogi og hin í Hlíðasmára Kópavogi.

Rafholt

Styrkja Bleiku slaufuna um 300.000 kr.

Frees ehf. - Kuldi

20% afsláttur og 1000 krónur af hverri vöru renna til Bleiku slaufunnar

GeoSilica Iceland

Við ætlum að bjóða upp á haustpakka með 2 vörum (REFOCUS og RENEW) og láta 300kr af hverjum seldum pakka renna til Bleiku slaufunnar. 

Betra kynlíf, kynfræðsla fyrir fullorðna

Betra kynlíf, kynfræðsla fyrir fullorðna, gefur 50% afslátt af mánaðarlegu áskriftargjaldi nýrra áskrifenda af tilefni Bleiku Slaufunnar með kóðanum: bleikaslaufan. Öll innkoma af nýjum áskriftum í október renna beint til Bleiku Slaufunnar.

Timberland

20% af andvirði Timberland Boots sem seldir eru á Bleika deginum, föstudaginn 20. október, renna til átaks Bleiku slaufunnar.

Sykurverk

Sykurverk leggur bleiku slaufunni lið og selur bleikar kökur og cupcakes með bleiku slaufunni á þar sem 20% af sölunni rennur til Krabbameinsfélagsins og verða þær afhentar á bleika daginn 20. október.

Henson

Hluti af söluvirði bleiks fatnaðar rennur til Bleiku slaufunnar í október.

Orkan

Verum bleik allan ársins hring með  Orkulyklinum í styrktarhóp Bleiku slaufunnar. Viðskiptavinir gefa hlut af afslætti sínum til málefnisins og Orkan jafnar á móti.  

Fyllum á tankinn saman fyrir Bleiku slaufuna.

Sjá alla samstarfsaðila


Konur og krabbamein

Verum til í að fræðast og fá hagnýt ráð.

Skimanir skipta miklu máli

Ert þú meðvituð um mikilvægi krabbameinsskimana?

Þú getur dregið úr líkunum á krabbameini

Taktu góðar ákvarðanir fyrir þig og þína

Þekkir þú einhvern með krabbamein?

Hvað getur þú gert þegar vinur, ættingi eða vinnufélagi greinist með krabbamein?

Hefur þú greinst með krabbamein?

Verum tilbúin að nýta ráðgjöf og upplýsingar sem geta gagnast okkur.  

Hefur þú misst ástvin úr krabbameini?

Vantar þig upplýsingar og ráðgjöf?


Sögur kvenna

Kynntu þér reynslusögur kvenna