Ása Sigríður Þórisdóttir 8. nóvember 2023

2,2 milljónir frá Orkunni til Bleiku slaufunnar

  • Á mynd eru (frá vinstri): Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður fjáröflunar og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu. Halla Þorvalsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar og Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Orkunnar.

Saman söfnuðu, Orkan og viðskiptavinir 2,2 milljónum króna handa Bleiku slaufunni. Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhópi Bleiku slaufunnar gáfu 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Orkan jafnaði síðan upphæðina sem viðskiptavinir söfnuðu. Auk þess runnu 5 krónur af öllum seldum lítrum á Bleika daginn til átaksins.

„Það er ánægjulegt að sjá fjöldan allan af viðskiptavinum Orkunnar sem þykir vænt um málefnið eins og okkur. Á Bleika deginum birtum við upphæðir frá viðskiptavinum til að sýna fram á að margt smátt gerir eitt stórt og við erum þakklát fyrir hversu vel söfnunin gekk og þá samstöðu sem viðskiptavinir okkar sýna þessu göfuga málefni“ segir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Orkunnar.

„Krabbameinsfélagið leggur sitt af mörkum með öflugu forvarnar- og fræðslustarfi, þýðingarmiklu framlagi til krabbameinsrannsókna, hagsmunagæslu og endurgjaldslausum stuðningi og ráðgjöf til krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Fjárhagslegur stuðningur einstaklinga og fyrirtækja við Bleiku slaufuna er því ómetanlegt framlag í baráttunni við krabbamein og undirstaða þess að félagið geti áfram sinnt þessum mikilvægu verkefnum. Krabbameinsfélagið þakkar Orkunni fyrir sinn mikilvæga stuðning í gegnum árin til félagsins af alhug“ segir Árni Reynir Alfredsson forstöðumaður fjáröflunar og markaðsmála hjá Krabbameinsfélaginu.

Krabbameinsfélagið þakkar Orkunni og viðskiptavinum kærlega fyrir stuðninginn sem skiptir svo sannarlega máli.