„Það er erfitt að greinast með krabbamein og búa á landsbyggðinni“

Saga Hrefnu Eyþórsdóttur

Hrefna Eyþórsdóttir býr á Austfjörðum og greindist með brjóstakrabbamein 33 ára gömul. Hún var í burtu frá heimili sínu og börnum í sextíu daga þetta ár sem hún var í krabbameinsmeðferðum. Hrefna ber Bleiku slaufuna til marks um sína baráttu og fyrir alla þá sem krabbamein snertir.

Hrefna Eyþórsdóttir býr á Austfjörðum og var einungis 31 árs þegar hún greindist með stökkbreytingu í BRCA 2 geni, en í kringum hana er stór krabbameinsætt. Í kjölfarið greindist hún með brjóstakrabbamein 33 ára gömul. „Auðvitað er það rosalega erfitt að greinast með krabbamein, og það er erfitt að búa út á landi og greinast með krabbamein.“ Í framhaldi af greiningu tók við krabbameinsmeðferð, en það reyndist Hrefnu erfiðast að vera fjarverandi frá börnum sínum tveimur sem þá voru eins árs og fimm ára. Hún var í burtu frá heimili sínu og börnum í sextíu daga þetta ár sem hún var í krabbameinsmeðferðum og fannst hún missa af lífinu með sínum nánustu. 

Fyrir landsbyggðarfólk þá er þetta erfiðara, þetta er lengra að sækja, þú ert ekki heima hjá þér og ert ekki með baklandið þitt á erfiðustu dögunum.

Að sögn Hrefnu er gríðarlegt áfall að greinast með krabbamein en henni þykir hugmyndin um að greinast með krabbamein hafa breyst. Í dag eru meðferðir betri en áður fyrr og meiri líkur á að þú sigrir baráttuna.

Ég er þakklát fyrir að geta borið Bleiku slaufuna og það merkir auðvitað það að ég læknaðist af mínum sjúkdómi og ég ber hana líka til heiðurs þeim sem hafa tapað baráttunni. 

Fyrir Hrefnu er gaman að sjá aðra bera Bleiku slaufuna því það er fyrir hana og alla hina sem greinst hafa með krabbamein og sýnir það bakland sem þau eiga í samfélaginu. Hrefna segir sína sögu og deilir reynslu sinni með öðrum með það að leiðarljósi að aðstoða fólk við að búa sig undir það sem koma skal. 

Viðtalsupptaka Hrefnu Eyþórsdóttur

Viðtal: Reynslusaga Hrefnu Eyþórsdóttur