Þekkingarpróf

Ýmsar lífsvenjur geta haft áhrif á líkurnar á því að fá krabbamein. Veist þú hverjar þær eru helstar? Taktu prófið!

1

Einstaklingar geta lítið gert til að draga úr líkum á krabbameinum.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Hver og einn getur gert ýmislegt til að draga úr líkum á krabbameinum. 

Áætlað er að hægt sé að koma í veg fyrir 4 af hverjum 10 krabbameinum með ákveðnum lífsháttum.


2Kaffidrykkja eykur líkur á krabbameinum. 

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Kaffidrykkja tengist ekki auknum líkum á krabbameinum.


3Mikil neysla á unnum kjötvörum tengist auknum líkum á krabbameini í ristli.

 

Rétta svarið er: "Rétt"

Mikil neysla á unnum kjötvörum (t.d. pepperóní, skinku, pylsum, beikoni, saltkjöti, hangikjöti, kjötfarsi o.fl.) eykur líkur á krabbameini í ristli og endaþarmi. 

Því er ráðlegt að takmarka neyslu á þessum vörum.


4Regluleg hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum.

 

Rétta svarið er: "Rétt"

Regluleg hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum, m.a. í ristli, brjóstum og legbol. Hún spornar líka gegn þyngdaraukningu en há líkamsþyngd tengist auknum líkum á ýmsum tegundum krabbameina. 

Viðmiðið er að hreyfa sig rösklega að minnsta kosti hálftíma á dag.


5Það hefur lítið upp á sig að hætta að reykja eða nota tóbak ef maður er einu sinni byrjaður.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Á heimsvísu eru reykingar og tóbaksnotkun helsta orsök krabbameina. 

Alltaf er heilsufarslegur ávinningur af því að hætta reykingum og tóbaknotkun, sama á hvaða aldri viðkomandi er eða hve lengi hann hefur reykt eða notað tóbak.


6Áfengisneysla hefur ekki áhrif á krabbameinslíkur.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Neysla áfengis eykur líkur á krabbameinum. 

Því minna magn og því sjaldnar, því betra. Allra best er að sleppa alveg að drekka áfengi. 


7Neysla á fjölbreyttum mat úr jurtaríkinu tengist auknum líkum á krabbameinum.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Ríkuleg neysla á grænmeti, ávöxtum, heilkornavörum, baunum og fleiri óunnum og náttúrulega næringarríkum fæðutegundum úr jurtaríkinu dregur úr hættu á krabbameini.

Margir Íslendingar mættu auka neysluna á þessum vörum verulega.


8Streituálag getur valdið krabbameini.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Ekki hefur verið sýnt fram á að stress eða streita ein og sér sé beinn orsakavaldur krabbameina.

Hinsvegar sýna rannsóknir að mikið eða langvarandi streituálag getur haft áhrif á lífshætti, t.d. er fólk þá líklegra til að hreyfa sig lítið, borða óhollt og drekka áfengi, sem allt eru þættir sem tengjast auknum líkum á krabbameinum.


9Mikil neysla á rauðu kjöti dregur úr líkum á krabbameinum.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Mikil neysla á rauðu kjöti (nauta-, kinda-, svína-, hrossakjöt) eykur líkur á krabbameini í ristli og endaþarmi.

Ráðlagt er að borða ekki meira en 350-500 grömm af rauðu kjöti á viku.


10Á Íslandi skín sólin aldrei svo skært að það þurfi að huga að sólarvörnum.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Bæði á Íslandi og erlendis ætti að huga vel að sólarvörnum, sólbruni eykur líkur á húðkrabbameinum. Börn ætti að verja sérstaklega vel þar sem húð þeirra er viðkvæmari en þeirra sem fullorðnir eru.

Hérlendis þarf að huga að sólarvörnum frá miðjum apríl og út september. Sólargeislar eru sterkastir í kringum hádegi og geta borist gegnum ský og endurkastast frá vatni , sandi og snjó.


11Fiskneysla eykur líkur á ýmsum tegundum krabbameina.

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Vísbendingar eru um að fiskneysla dragi úr líkum á nokkrum gerðum krabbameina. 

Þó ætti að takmarka neyslu á mikið söltuðum fiski og unnum fiskvörum.


12Geislun frá ljósabekkjum hefur mun minni áhrif á húðina en geislun frá sólinni og því er óhætt að stunda þá af kappi

 

Rétta svarið er: "Rangt"

Útfjólublá geislun eykur líkur á húðkrabbameini, hvort sem geislarnir stafa frá ljósabekk eða sólinni. Í ljósabekk er styrkur geislunarinnar þó meiri en í sólarljósi.

Öllum er ráðlagt frá því að nota ljósabekki.