Verum bleik - fyrir
okkur öll

Sögur kvenna eru viðtöl við konur sem greinst hafa með krabbamein sem miðla sinni sögu með það að leiðarljósi að aðstoða aðrar konur í sömu sporum. Einlægar og upplýsandi frásagnir hvernig er að ganga í gegnum krabbameinsmeðferðir og mikilvægi vinahópa og aðstandenda í því ferli. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni. Sýnum samstöðu gegn krabbameinum í konum og verum bleik í október. Verum bleik – fyrir okkur öll.
Spila auglýsingu

Bleiki dagurinn verður 20. október. Taktu daginn frá!

00 Dagar
00 Klukkustundir
00 Mínútur
00 Sekúndur

Bleikar fréttir

14. desember 2023 : Bleikasta slaufan sló í gegn

Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir, hönnuðir Bleiku slaufunni 2023, afhentu Krabbameinsfélaginu 13.475.000 krónur sem söfnuðust með sölu á Sparislaufunni.

Lesa meira

14. desember 2023 : Metta Sport styrkir Bleiku slaufuna um 1.432.064 kr.

Krabbameinsfélagið þakkar Metta Sport og viðskipavinum kærlega fyrir stuðninginn, hann skiptir svo sannarlega máli.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Við þurfum að þora að stíga fram og segja frá því hvernig okkur líður

Josina Wilhelmina Bergsøe er skartgripahönnuður, rithöfundur og fyrirlesari með persónulega reynslu af langvinnum og síðbúnum aukaverkunum eftir krabbamein. Josina greindist með brjóstakrabbamein árið 2010 og hefur frá þeim tíma unnið markvisst að því að auka skilning á veruleika þeirra sem greinast með krabbamein. Hún hefur einnig verið ötul talskona þess að auka sýnileika sjúkdómsins í samfélaginu og breyta staðalímyndum um krabbameinssjúklinga. Við ræddum við Josinu um lífið eftir krabbamein, sem hún tekst á við af næmni og með húmor og lífsgleði að leiðarljósi.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Hagkaup styrkir Bleiku slaufuna um 2 milljónir

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok október af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna sem söfnuðust til styrkar Bleiku slaufunni í versl­un­um fyr­ir­tæk­is.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : 2,2 milljónir frá Orkunni til Bleiku slaufunnar

Saman söfnuðu, Orkan og viðskiptavinir 2,2 milljónum króna handa Bleiku slaufunni. Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhópi Bleiku slaufunnar gáfu 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Orkan jafnaði síðan upphæðina sem viðskiptavinir söfnuðu. Auk þess runnu 5 krónur af öllum seldum lítrum á Bleika daginn til átaksins.

Lesa meira

Sjá allar fréttir og viðburði


6.115

er árlegur meðalfjöldi þeirra skipta sem ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita stuðning og ráðgjöf.

916

er fjöldi þeirra kvenna sem greinist árlega með krabbamein hérlendis.

455

milljónum veitt úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 47 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2023.

Stöndum saman og virkjum vináttuna!

Vilt þú vinna vinkonuferð í Bláa lónið?
Þátttaka kvenna á Íslandi í skimun fyrir krabbameinum hefur minnkað síðustu ár og hvetjum við ykkur til að fá vinkonur ykkar til að mæta í skimun. Því eitt er víst að samstöðukraftur kvenna er magnaður. Það sýna vinkonuhópar sem halda hópinn, jafnvel svo áratugum skiptir, í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning á erfiðum stundum og hvatningu þegar á þarf að halda. Skráðu þig í vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar og ein heppin vinkona verður dregin út og getur unnið ferð í Bláa Lónið ásamt flotmeðferð og flothettu fyrir 6 vinkonur!


Skráðu þig

Bleika slaufan 2023

Bleika slaufan í ár hönnuð af gullsmíðameisturunum Lovísu Halldórsdóttur Olesen og Unni Eir Björnsdóttur


Vinir slaufunnar

Perform

PERFORM styrkir Bleiku Slaufuna með 10% af sölu af völdum vörum ásamt 6.000 kr. af  hverjum seldum Hrökaleg pakka til heiðurs Hrannar Sigurðardóttur.

Curvy

Bleiki dagurinn í október er fastur liður hjá okkur í Curvy!! Við leggjum að sjálfsögðu átakinu lið og mun 15% af sölu á öllum bleikum vörum í Curvy renna til bleiku slaufunnar og krabbameins félagsins.

FH: Bleikur leikur

FH smellir í „Bleika leikinn” þegar meistaraflokkur karla í knattspyrnu mætir Stjörnunni í Kaplakrika sunnudaginn 24. september til styrktar Bleiku slaufunni.

Krósk by Kristín Ósk

Gefa 20-30% af sölu á ákveðnum vörum til Bleiku slaufunnar. 

Iceland Hotel Collection by Berjaya

Styrkja bleiku slaufuna með gjafabréfasölu sem hafa verið mjög vinsælar gjafir. Inneignargjafabréf upp á 10.000 kr. og renna 1.000 kr. til Krabbameinsfélagsins.

Vettlinga­upp­skrift frá Ice­wear­garn

Iceweargarn hafa fengið Kristínu Örnólfsdóttir vettlingahönnuð til að hanna vettlingauppskrift til að styrkja Bleiku slaufuna. Uppskriftin verður seld á heimasíðu og í verslun Iceweargarn. Öll upphæð sölunnar (að frádregnum virðisauka) mun renna óskert til félagsins um ókomin ár. 

Rafholt

Styrkja Bleiku slaufuna um 300.000 kr.

Óskabönd

Orkusteinaarmband til styrktar Bleiku slaufunni.

Hjá Höllu

Bjóða upp á rauðrófusafa sem er fallega bleikur á litinn og mun allur ágóði af sölu hans renna til Bleiku slaufunnar í október.

FlyOver Iceland

Selja bleika miða á heimasíðu og í FlyOver Iceland til styrktar Bleiku slaufunni.

A4

Bleik minnisbók með línustrikuðum blöðum og teygju. Aftast í bókinni er umslag þar sem hægt er að geyma minnismiða og fleira sem ekki má týnast. 20% af söluandvirði bókarinnar renna óskipt til Krabbameinsfélagsins.

Bleik 500 ml flaska frá iTotal úr ryðfríu stáli, BPA frí, fjölnota og umhverfisvæn. Heldur köldu í 24 klst. og heitu í 12 klst. 20% af söluandvirði flöskunnar renna óskipt til Krabbameinsfélagsins.

Eirberg

Í verslunum Eirberg eru bleikar vörur á sérstöku tilboði og rennur hluti söluandvirðisins til Bleiku slaufunnar.

Sjá alla samstarfsaðila


Konur og krabbamein

Verum til í að fræðast og fá hagnýt ráð.

Skimanir skipta miklu máli

Ert þú meðvituð um mikilvægi krabbameinsskimana?

Þú getur dregið úr líkunum á krabbameini

Taktu góðar ákvarðanir fyrir þig og þína

Þekkir þú einhvern með krabbamein?

Hvað getur þú gert þegar vinur, ættingi eða vinnufélagi greinist með krabbamein?

Hefur þú greinst með krabbamein?

Verum tilbúin að nýta ráðgjöf og upplýsingar sem geta gagnast okkur.  

Hefur þú misst ástvin úr krabbameini?

Vantar þig upplýsingar og ráðgjöf?


Sögur kvenna

Kynntu þér reynslusögur kvenna