Verum bleik - fyrir
okkur öll

Sögur kvenna eru viðtöl við konur sem greinst hafa með krabbamein sem miðla sinni sögu með það að leiðarljósi að aðstoða aðrar konur í sömu sporum. Einlægar og upplýsandi frásagnir hvernig er að ganga í gegnum krabbameinsmeðferðir og mikilvægi vinahópa og aðstandenda í því ferli. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni. Sýnum samstöðu gegn krabbameinum í konum og verum bleik í október. Verum bleik – fyrir okkur öll.
Spila auglýsingu

Bleiki dagurinn verður 20. október. Taktu daginn frá!

00 Dagar
00 Klukkustundir
00 Mínútur
00 Sekúndur

Bleikar fréttir

14. desember 2023 : Bleikasta slaufan sló í gegn

Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir, hönnuðir Bleiku slaufunni 2023, afhentu Krabbameinsfélaginu 13.475.000 krónur sem söfnuðust með sölu á Sparislaufunni.

Lesa meira

14. desember 2023 : Metta Sport styrkir Bleiku slaufuna um 1.432.064 kr.

Krabbameinsfélagið þakkar Metta Sport og viðskipavinum kærlega fyrir stuðninginn, hann skiptir svo sannarlega máli.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Við þurfum að þora að stíga fram og segja frá því hvernig okkur líður

Josina Wilhelmina Bergsøe er skartgripahönnuður, rithöfundur og fyrirlesari með persónulega reynslu af langvinnum og síðbúnum aukaverkunum eftir krabbamein. Josina greindist með brjóstakrabbamein árið 2010 og hefur frá þeim tíma unnið markvisst að því að auka skilning á veruleika þeirra sem greinast með krabbamein. Hún hefur einnig verið ötul talskona þess að auka sýnileika sjúkdómsins í samfélaginu og breyta staðalímyndum um krabbameinssjúklinga. Við ræddum við Josinu um lífið eftir krabbamein, sem hún tekst á við af næmni og með húmor og lífsgleði að leiðarljósi.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Hagkaup styrkir Bleiku slaufuna um 2 milljónir

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok október af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna sem söfnuðust til styrkar Bleiku slaufunni í versl­un­um fyr­ir­tæk­is.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : 2,2 milljónir frá Orkunni til Bleiku slaufunnar

Saman söfnuðu, Orkan og viðskiptavinir 2,2 milljónum króna handa Bleiku slaufunni. Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhópi Bleiku slaufunnar gáfu 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Orkan jafnaði síðan upphæðina sem viðskiptavinir söfnuðu. Auk þess runnu 5 krónur af öllum seldum lítrum á Bleika daginn til átaksins.

Lesa meira

Sjá allar fréttir og viðburði


6.115

er árlegur meðalfjöldi þeirra skipta sem ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita stuðning og ráðgjöf.

916

er fjöldi þeirra kvenna sem greinist árlega með krabbamein hérlendis.

455

milljónum veitt úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 47 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2023.

Stöndum saman og virkjum vináttuna!

Vilt þú vinna vinkonuferð í Bláa lónið?
Þátttaka kvenna á Íslandi í skimun fyrir krabbameinum hefur minnkað síðustu ár og hvetjum við ykkur til að fá vinkonur ykkar til að mæta í skimun. Því eitt er víst að samstöðukraftur kvenna er magnaður. Það sýna vinkonuhópar sem halda hópinn, jafnvel svo áratugum skiptir, í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning á erfiðum stundum og hvatningu þegar á þarf að halda. Skráðu þig í vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar og ein heppin vinkona verður dregin út og getur unnið ferð í Bláa Lónið ásamt flotmeðferð og flothettu fyrir 6 vinkonur!


Skráðu þig

Bleika slaufan 2023

Bleika slaufan í ár hönnuð af gullsmíðameisturunum Lovísu Halldórsdóttur Olesen og Unni Eir Björnsdóttur


Vinir slaufunnar

Kanil­snúðar með bleiku kremi

Pizzan býður upp á kanilsnúða með bleiku kremi og rennur hluti af sölu til styrktar Bleiku slaufunnar. 

Hildur Hafstein skartgripaverslun

Selur armband í tveimur útgáfum, með sterling silfri og gullhúðuðu sterling silfur. Kórall stendur fyrir visku, hamingju, hógværð, heppni og vernd. Armbandið kostar 9.900 krónur og rennur hluti söluverðs til Bleiku Slaufunnar.

Iceherbs

20% af allri sölu á á bleikum Iceherbs vörum í Hagkaup renna til átaksins. Bleikar vörur eru: Iceherbs Andoxun, Iceherbs Rauðrófur, Iceherbs Mjólkurþistill. Vörurnar verða í stöndum í verslunum Hagkaups í Október.

Fljótandi hengirúm frá NormX

25% afsláttur af bleikum hengirúmum og 500 kr. af hverju seldu, fer til Krabbameinsfélagsins. 

Gildir frá og með bleika deginum 20. október til mánaðarmóta okt.-nóv.

Central Iceland

Hágæða kasmír trefill með bleikri slaufu og húfa í stíl hafa svo sannarlega slegið í gegn og nú hefur Rakel Ósk bætt við tveimur gerðum af peysum. 50% af öllum ágóða rennur til Bleiku slaufunnar.

Vettlinga­upp­skrift frá Ice­wear­garn

Iceweargarn hafa fengið Kristínu Örnólfsdóttir vettlingahönnuð til að hanna vettlingauppskrift til að styrkja Bleiku slaufuna. Uppskriftin verður seld á heimasíðu og í verslun Iceweargarn. Öll upphæð sölunnar (að frádregnum virðisauka) mun renna óskert til félagsins um ókomin ár. 

Fjölbrautarskóli Suðurnesja

Nemendur seldu heimabakaðar vöfflur með bleikum rjóma og kremi. Á kennarastofunni var boðið upp á glæsilegar bleikar kökur sem Guðbjörg matreiðslukennari hristi fram úr erminni. Þess má geta að nemendur í fatasaumsáföngum eru þessa dagana að sauma bleikar slaufur sem verða seldar í skólanum og í október er skólinn lýstur upp með bleikum ljósum.

Eirberg

Í verslunum Eirberg eru bleikar vörur á sérstöku tilboði og rennur hluti söluandvirðisins til Bleiku slaufunnar.

Icepharma

Styrkja Krabbameinsfélagið um 200.000 kr. í nafni Natracare. 

ChitoCare Beauty

Styrkir Bleiku slaufuna um 350 krónur af hverju seldu ChitoCare beauty Face Cream og hverri seldri Andlitstvennu í október.

Silki­svefn

20% af allir sölu af bleiku silki rennur til Bleiku slaufunnar.

Raforkusalan Straumlind

Nýsköpunar- og orkufyrirtækið Straumlind styrkir Bleiku slaufuna um 1.000 kr. fyrir hverja skráningu sem berst á tímabilinu 20. til og með 27. október. 

Sjá alla samstarfsaðila


Konur og krabbamein

Verum til í að fræðast og fá hagnýt ráð.

Skimanir skipta miklu máli

Ert þú meðvituð um mikilvægi krabbameinsskimana?

Þú getur dregið úr líkunum á krabbameini

Taktu góðar ákvarðanir fyrir þig og þína

Þekkir þú einhvern með krabbamein?

Hvað getur þú gert þegar vinur, ættingi eða vinnufélagi greinist með krabbamein?

Hefur þú greinst með krabbamein?

Verum tilbúin að nýta ráðgjöf og upplýsingar sem geta gagnast okkur.  

Hefur þú misst ástvin úr krabbameini?

Vantar þig upplýsingar og ráðgjöf?


Sögur kvenna

Kynnstu reynslusögum kvenna