Vil vera til staðar - hvað get ég gert?

Verum til staðar þegar vinur eða ættingi greinist með krabbamein

Þegar vinur eða ættingi greinist með krabbamein vitum við stundum ekki alveg hvað við getum gert til að hjálpa, þó að okkur langi til þess.

Það er hægt að leggja lið á ýmsa vegu. Hafðu frumkvæðið, því mörgum þykir erfitt að biðja um aðstoð. Þú getur spurt hvað henti vel eða komið með beinar uppástungur. Ef aðstoð er afþökkuð er gott að láta vita að boðið standi samt áfram.

Það sem gæti komið sér vel:

 

  • Aðstoð tengd heimilisstörfum, verslunarferðum, garðvinnu, gæludýrum, bílum o.fl.
  • Matseld, - að þú komir með mat og jafnvel þannig að hægt sé að eiga í frysti.
  • Akstur og/eða fylgd í læknaviðtöl, meðferðir og þess háttar.
  • Aðstoð með börn, t.d. rólóferðir, skutl og sækingar, boðið í heimsókn.
  • Að þú sért til staðar fyrir spjall og hlustun. Nærvera, símtöl, tölvupóstar.
  • Að þú stingir upp á og bjóðir til einhvers sem gæti orðið til upplyftingar, t.d. tónleikar, gönguferðir, spil, ökuferðir.

Þó að meðferð sér lokið getur af ýmsum ástæðum verið þörf fyrir aðstoð mun lengur

Verum áfram til staðar

 

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=7o7GIkbRH9k">https://www.youtube.com/watch?v=7o7GIkbRH9k">https://www.youtube.com/watch?v=7o7GIkbRH9k