Málþing: Krabbameinsrannsóknir til framfara

Á alþjóðadegi krabbameinsrannsókna 24. september var markmiðið að vekja athygli alþjóðasamfélagsins á mikilvægi krabbameinsrannsókna og þeim miklu framförum sem hafa átt sér stað fyrir tilstilli þeirra.

Í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna stóð Krabbameinsfélagið fyrir málþingi sem var streymt í beinni útsendingu í hádeginu. Upptökuna má nálgast hér og einnig á Facebook

Bleika slaufa ársins 2020, sem er hönnuð af Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur skartgripahönnuði í Aurum og fer í sölu 1. október, var sýnd í upphafi málþingsins. Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins tilkynnti að allur ágóði af sölu bleiku slaufunnar í ár renni til krabbameinsrannsókna, enda eru þær forsenda þess að fækka megi þeim sem greinast með krabbamein, fækka megi þeim sem látast af völdum krabbameina og bæta megi lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein.

Á málþinginu kynnti Jóhanna Eyrún Torfadóttir doktor í lýðheilsufræði og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu fyrstu niðurstöður úr Áttavitanum, rannsókn á reynslu fólks sem greinst hefur með krabbamein.

Valtýr Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalæknir á Landspítala sagði frá uppbyggingu gagnagrunns um æðaleggi hjá krabbameinsveikum börnum, en rauntímagagnagrunnur getur gefið ómetanlegar upplýsingar um hvar helst er hægt að bæta þjónustu við krabbameinsveik börn.

Vigdís Hrönn Viggósdóttir hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala og doktorsnemi fjallaði um síðbúnar afleiðingar krabbameina í æsku, svo sem á heilsufar, lífsgæði og hjarta- og efnaskiptatengda áhættuþætti á fullorðinsaldri.

Margrét Helga Ögmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands fjallaði um hlutverk endurvinnslu í frumum og hvernig skilningur á hegðun fruma getur skipt máli varðandi bætta meðferð og greiningu.

Þessar þrjár rannsóknir þeirra Valtýs, Vigdísar og Margrétar hafa hlotið styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins sem hefur á síðastliðnum 4 árum styrkt 30 rannsóknir um alls 227 milljónir kr.

Að lokum fjallaði Helgi Birgisson yfirlæknir á Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins um gæðaskráningu greiningar og meðferðar krabbameina á Íslandi og hvernig gæðaskráning er í þágu þeirra sem greinast með krabbamein.

Hjá Krabbameinsfélaginu fer fram fjölbreytt rannsóknastarf og má þar helst nefna rannsóknir úr efnivið Krabbameinsskrár. Starfsfólk félagsins birtir fjölmargar vísindagreinar á hverju ári og er vísindagreinin úr gæðaskráningarverkefninu, sem lesa má hér, meðal þeirra nýjustu.

Eins og sjá má voru rannsóknirnar á hádegismálþinginu afar fjölbreyttar og endurspeglar það hvernig hver og ein rannsókn bætir við þekkingarbita í púsluspilið stóra sem skilningur á krabbameinum er. Það passar afar vel inn í þema alþjóðadags krabbameinsrannsókna, sem er „Let‘s team up for cancer research“, eða vinnum saman að krabbameinsrannsóknum.

Þessi alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur okkur tækifæri til að fræðast og skuldbinda okkur sem einstaklingar og samfélag til að styðja krabbameinsrannsóknir í orði og gjörðum. Dagurinn gefur okkur líka tækifæri til að gleðjast yfir þeim framförum sem hafa átt sér stað fyrir tilstilli krabbameinsrannsókna, vísindafólkinu sem starfar við þær og einstaklingana og sjóðina sem styrkja þær.

Á vefsíðu alþjóðlega krabbameinsdagsins, World Cancer Research Day, er að finna ýmsar upplýsingar og okkur boðið að taka þátt í deginum með því að skrifa undir yfirlýsingu til stuðnings krabbameinsrannsókna.

Áfram krabbameinsrannsóknir!