Skipulögð leit að krabbameini
Vissir þú að einungis þrjú krabbamein uppfylla skilyrði um næga gagnsemi og skaðleysi með skipulagðri leit að krabbameinum á frumstigi? Það eru krabbamein í leghálsi, brjóstum og ristli. Öll krabbameinsleit miðast við að gera sem mest gagn og valda sem minnstum skaða.
Leghálskrabbameinsleit
Vissir þú að ef ekki væri fyrir skipulega leit að leghálskrabbameini myndu tvær konur deyja úr leghálskrabbameini á mánuði en ekki þrjár til fjórar á ári eins og nú er?
Konum er boðið í leghálskrabbameinsleit á þriggja ára fresti frá 23 ára til 65 ára. Það eru þekktar um 40 tegundir af HPV–veirum sem geta valdið frumubreytingum og um 15 þeirra valda einnig leghálskrabbameini, yfirleitt á löngum tíma. Leghálskrabbamein er sjaldgæft hjá konum yngri en 25 ára.
HPV–sýking er algengust hjá yngra fólki, um 60% fólks á aldrinum 20 til 24 ára er með HPV–sýkingu á hverjum tíma en flestir losna við hana með hjálp ónæmiskerfisins á hálfu ári til tveimur árum en ekki allir. Eina leiðin til að vita hvort HPV–sýking er að valda konum skaða er að mæta reglulega í leghálskrabbameinsleit.
Algengi HPV-sýkinga minnkar svo hratt eftir 25 ára aldur og við 60 ára aldur eru aðeins 4% kvenna með HPV–sýkingu. Þess vegna er talið óhætt að hætta leghálsleit við 65 ára aldur.
Hefur þú fengið bréf? Pantaðu tíma í leit.
Brjóstakrabbameinsleit
Vissir þú að um 90% kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein lifa lengur en 5 ár – sem er mjög góður árangur á heimsvísu?
Brjóstakrabbamein má greina áður en einkenni koma fram með röntgenmyndatöku af brjóstum og fleiri rannsóknum. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal kvenna á Íslandi en er sjaldgæft hjá karlmönnum. Á hverju ári greinast rúmlega tvöhundruð konur og tveir karlmenn með brjóstakrabbamein. Konur á aldrinum 40 til 69 ára fá boð um að mæta í hópleit að brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti. Konum 70 ára og eldri er frjálst að mæta í leit á tveggja ára fresti. Brjóstakrabbamein má greina með röntgenmyndatöku af brjóstum áður en einkenni koma fram.
Því fyrr sem brjóstakrabbamein greinist því ólíklegra er að meinið hafi náð að dreifa sér og því meiri eru líkur á lækningu. Ef þú finnur hnút eða önnur einkenni sem bent geta til krabbameins er mikilvægt að leita til læknis. Einnig er hægt að leita ráða hjá hjúkrunarfræðingi á Leitarstöðinni með því að senda póst á leit@krabb.is eða hringja í síma 540 1919.
Hefur þú fengið bréf? Pantaðu tíma í leit.
Ristilkrabbameinsleit
Vissir þú að skipuleg leit að ristilkrabbameini mun líklega fækka dauðsföllum af völdum ristilkrabbameins um 15-20% á ári sem jafngildir 8-10 mannslífum árlega?
Krabbameinsfélagið hefur barist fyrir skipulegri leit að ristilkrabbameini frá því á síðustu öld, en loksins sjáum við þetta framfaraskref í augsýn. Krabbamein í ristli og endaþarmi er eitt þriggja krabbameina sem hægt er að finna á byrjunarstigi með skipulegri leit (skimun).
Markmið skipulegrar hópleitar að ristilkrabbameini (krabbamein í ristli- og endaþarmi) er annars vegar að lækka dánartíðni af völdum sjúkdómsins með því að finna krabbamein á frumstigum þannig að lækning sé frekar möguleg og hins vegar að lækka tíðni ristilkrabbameins með því að greina og fjarlægja forstig (sepa) sjúkdómsins áður en þau þróast í krabbamein.
Erlendar rannsóknir hafa bent til að skimun fyrir ristilkrabbameini lækki dánartíðni um 15% meðal almennings sem boðið er til skimunar og 25% hjá þeim sem taka þátt í skimun.
Ristilkrabbamein er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameins á Íslandi líkt og á Vesturlöndum en árlega greinast að meðaltali um 140 einstaklingar hérlendis. Samkvæmt tölum frá Krabbameinsskránni fyrir tímabilið 2010-2014 greindust 7% karla og kvenna undir fimmtugu, 16% á aldrinum 50-59 ára, 24% á aldrinum 60-69 ára, 14% á aldrinum 70-74 ára og 39% eldri en 75 ára. Árlega látast að meðaltali rúmlega 50 úr sjúkdómnum. Meðalaldur við greiningu ristilkrabbameins er um 70 ár og endaþarmskrabbameins rúmlega 65 ár og er sjúkdómurinn heldur algengari meðal karla en kvenna.
Hringdu í síma 800 4040 eða sendu okkur línu á radgjof@krabb.is ef þú hefur spurningar um krabbameinsleit sem er í boði.