Viltu koma á námskeið og fyrirlestra sem upplýsa, efla og styrkja?

Við bjóðum upp á fjölda námskeiða og fyrirlestra  sem hafa að markmiði að mæta þörfum þess breiða hóps sem til Krabbameinsfélagsins leitar. 

Flest námskeið og fyrirlestrar eru fólki að kostnaðarlausu en stöku námskeiði fylgir vægt skráningargjald. Við hvetjum aðstandendur og þá sem hafa misst til að kynna sér það sem er í boði. 


Dæmi um fræðslu og námskeið sem haldin eru reglulega: 

  • Hugræn atferlismeðferð (HAM)
  • Hugræn atferlismeðferð (HAM) við svefnvandamálum
  • Minni og einbeiting
  • Núvitund og samkennd
  • Núvitund fyrir ungmenni (16-22 ára) sem misst hafa ástvin
  • JógaNidra

Kynntu þér dagskrána

Dæmi um fræðslu og námskeið sem haldin eru reglulega:

  • Hugræn atferlismeðferð (HAM)
  • Hugræn atferlismeðferð (HAM) við svefnvandamálum
  • Gott útlit–betri líðan fyrir konur í krabbameinsmeðferð
  • Minni og einbeiting
  • Núvitund og samkennd
  • Núvitund fyrir ungmenni (16-22 ára) sem misst hafa ástvin
  • JógaNidra
  • Mín leið eftir meðferð við brjóstakrabbameini

Dæmi um viðburði og fyrirlestra eru: 

  • Kúnstin að nærast á 21. öldinni
  • Óður til framtíðar. Málþing um líknarþjónustu.
  • Ráðstefnur og málþing um mismunandi tegundir krabbameina, ristilkrabbamein, blöðruhálskirtilskrabbamein, brjóstakrabbamein og krabbamein í kvenlíffærum. 
  • Hádegisfyrirlestrar - Einu sinni til tvisvar í mánuði eru hádegisfyrirlestar um mismunandi málefni

Skráðu þig á póstlistann og fylgstu með dagskránni.