Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar 28. september í Þjóðleikhúsinu
Nú styttist í Bleikan október. Tryggðu þér miða á opnunarviðburðinn sem verður í Þjóðleikhúsinu 28. september.
Húsið opnar kl. 18:30 með glimmrandi og glitrandri bleikri stemningu. Samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar kynna og selja bleikar vörur til styrktar átakinu í Þjóðleikhúskjallaranum. Dagskrá hefst á stóra sviðinu kl. 20:00 með stuttri opnunar- og kynningardagskrá átaksins auk þess sem auglýsing Bleiku slaufunnar verður frumsýnd. Aðgangseyrir er kr.7.250. Innifalið er miði á leikverkið „Til hamingju með að vera mannleg“ og Bleika slaufan 2023.
Sigríður Soffía - Opnunarviðburður Bleiku Slaufunnar
Sérstök hátíðarsýning verður á leikverkinu „Til hamingju með að vera mannleg“ Ástarjátningu til lífsins - ljóð, leikur, söngur, grín og dans! Sýningin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd á liðnu vori, hlaut afar lofsamlega umfjöllun og þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna. Hún byggir á ljóðabók, Sigríðar Soffíu Níelsdóttur, sem hún samdi þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Verkið fjallar um þrautseigju, andlegan styrk og samfélag kvenna sem standa hver með annarri. Eitt meginþema Bleiku slaufunnar í ár er einmitt samstaða og máttur hennar.
Sjáumst í Þjóðleikhúsinu þann 28. september.