Ása Sigríður Þórisdóttir 11. október 2022

Upptaka: Þegar foreldri fær krabbamein - hvaða áhrif hefur það á börnin?

Það getur tekið á að þurfa að segja barninu sínu frá því að foreldri hafi greinst með krabbamein. Hádegiserindi 11. október kl.11:30 -13:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins. Öll velkomin.

Í tilefni af Bleiku slaufunni verður boðið upp á hádegiserindi þann 11. október kl.11:30 -13:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8. Léttar veitingar í boði. Viðburðinum verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.

Það getur tekið á að þurfa að segja barninu sínu frá því að foreldri hafi greinst með krabbamein. Það skiptir hins vegar máli fyrir barnið að veikindum sé ekki haldið leyndum fyrir því og að það fái upplýsingar sem hæfa aldri og þroska. Í Bleiku slaufunni í ár segir Ásdís Ingólfsdóttir sína sögu og kemur m.a. inn á hvaða áhrif veikindi hennar höfðu á börnin.

Dagskrá

  • Frásagnir þeirra sem reynt hafa:
    Ásdís Ingólfsdóttir, kennari og rithöfundur og börn hennar þau Laufey Haraldsdóttir og Steindór Haraldsson.
  • Fagleg sýn:
    Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu fjalla um upplifun og líðan barna þegar foreldri greinist með krabbamein, hvernig hægt er að styðja við börnin og fjölskyldur þeirra og þá þjónustu sem Krabbameinsfélagið veitir.