Sjálfskoðun brjósta

Með því að skoða og þreifa brjóstin reglulega geta konur áttað sig á því hvað er eðlilegt og hvað hefur breyst frá því síðast. 

Brjóstaþreifing

Best er að þreifa brjóstin einu sinni í mánuði, um það bil viku til tíu dögum eftir að blæðingar hefjast. Eftir tíðahvörf er best að þreifa brjóstin á svipuðum tíma í hverjum mánuði. Mikilvægt er að leita læknis ef einhver breyting finnst. Rétt er að hafa í huga að flestir hnútar í brjóstum eru góðkynja. 

Konur eru hvattar til mæta í skimun fyrir brjóstakrabbameini þegar þær fá boðsbréf OG einnig að þreifa brjóst sín með reglubundnum hætti. 

Hér má sjá kennslumyndband og leiðbeiningar um brjóstaþreifingu:

https://www.youtube.com/watch?v=4EXctYN3Bgo