Lífsstíll og lungnakrabbamein

  • Lungnamynd

Lungnakrabbamein er næst algengasta krabbameinið hjá konum á Íslandi. Á hverju ári greinast um 97 konur með sjúkdóminn. Um 90% lungnakrabbameina orsakast af tóbaksreykingum og því er þetta sjúkdómur sem ætti að vera hægt að koma í veg fyrir að mestu leyti. Mikið er í húfi því lungnakrabbamein veldur flestum dauðsföllum vegna krabbameins, bæði hjá körlum og konum.

Öndunarvegurinn er þakinn örfínum bifhárum sem vernda lungum fyrir eiturefnum, bakteríum og veirum. Tóbaksreykur lamar bifhárin og þá geta krabbameinsvaldandi efni í tóbaksreyk (þau eru um 70 talsins!) safnast fyrir í lungum og valdið skemmdum sem geta leitt til lungnakrabbameins.

Langbest er að byrja aldrei að reykja. Einnig er mikilvægt að við verndum okkur og okkar fólk fyrir óbeinum reykingum, því það að búa með reykingarmanni eykur hættu á lungnakrabbameini um 20-30% miðað við að búa á reyklausu heimili.

Fyrir fólk sem reykir er það að hætta að reykja mögulega stærsta einstaka skrefið til betri heilsu. Áhættan á lungnakrabbameini minnkar um 30-50% innan tíu ára frá reykbindindi.

Ert þú með einkenni frá lungum eða önnur óþægindi?

Á byrjunarstigum lungnakrabbameins eru sjaldan einkenni, og það á reyndar við um flestar tegundir krabbameina. Talið er að lungnakrabbamein geti byrjað að myndast um 15-20 árum áður en það fer að gefa nokkur einkenni.

Kannast þú við:

  • Þrálátan hósta?
  • Að hósta upp blóði?
  • Hæsi eða brjóstverk?
  • Lystarleysi, slappleika, óútskýrt þyngdartap eða langvarandi hita?

Ef svo er skyldi láta kanna hvort möguleiki sé á lungnakrabbameini, þó einkennin geti orsakast af öðru. Fyrsta skrefið er að leita til heimilislæknis. Þér er líka velkomið að senda tölvupóst, hringja eða koma í kaffi til starfsfólksins í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem leiðbeinir þér, þér að kostnaðarlausu.

Ertu kannski að spá í önnur einkenni krabbameina?

Hér eru frekari upplýsingar.

 Hvað er hægt að gera til að minnka líkur á krabbameini í lungum?

 Samkvæmt skýrslu frá Alþjóðakrabbameinsrannsóknarsjóðnum sem byggir á yfirferð fjölda rannsókna þá eru eftirfarandi lífsstílsþættir (fyrir utan reykingar, óbeinar reykingar og mengun frá bílum) sem geta haft áhrif á líkur á myndun krabbameins í lungum.

  • Arsen í drykkjarvatni
  • Notkun fæðubótarefna sem innihalda háa skammta af beta-caroten meðal núverandi og fyrrverandi reykingafólks

 Langar þig að vita meira um lungnakrabbamein?

Hér má finna nánari upplýsingar.

 Hefur þú greinst með lungnakrabbamein?

Hér má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar