Bleika slaufan 2016

Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttir hönnuðir og gullsmiðir.

Það voru Þær Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttur sem unnu hugmyndasamkeppni sem var haldin af Krabbameinsfélaginu í samstarfi við Félag Íslenskra gullsmiða í apríl síðastliðnum um hönnun slaufunnar 2016 og lýsa þær formi hennar þannig; “Bleika slaufan 2016 táknar stuðningsnetið sem mikilvægast er þeim konum sem greinast með krabbamein - fjölskyldan og samfélagið".

Unnur og Lovísa voru samhliða í námi og útskrifuðust úr Iðnskólanum í Reykjavík árið 2007.  Að námi loknu störfuðu þær báðar á verkstæðum, Lovísa hjá Carat og Unnur í Meba þar sem hún starfar enn. Báðar hanna þær og smíða undir eigin merki.

Öllu söfnunarfé Bleiku slaufunnar 2016 verður varið óskertu til endurnýjunar tækjabúnaðar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini. Ávinningur af endurnýjuðum tækjabúnaði er margþættur og má þar nefna minni geislun og minni óþægindi við myndatökur, aukið öryggi við greiningar og hagræði vegna lægri bilanatíðni og sparnaði við viðhald tækja.

Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið og Félag íslenskra gullsmiða halda samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar. Sigurvegari í fyrra var Erling Jóhannesson gullsmiður. Krabbameinsfélagið telur mikinn hag í því fyrir báða aðila að hönnun Bleiku slaufunnar sé í höndum íslenskra fagmanna. Sú hefð sem skapast hefur með samstarfinu og framleiðslu slaufunnar er einstök í heiminum, fjölmargir safna slaufunni ár frá ári og hróður íslenskra hönnuða berst langt úr fyrir landssteinana.