Verum bleik - fyrir
okkur öll

Sögur kvenna eru viðtöl við konur sem greinst hafa með krabbamein sem miðla sinni sögu með það að leiðarljósi að aðstoða aðrar konur í sömu sporum. Einlægar og upplýsandi frásagnir hvernig er að ganga í gegnum krabbameinsmeðferðir og mikilvægi vinahópa og aðstandenda í því ferli. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni. Sýnum samstöðu gegn krabbameinum í konum og verum bleik í október. Verum bleik – fyrir okkur öll.
Spila auglýsingu

Bleiki dagurinn verður 20. október. Taktu daginn frá!

00 Dagar
00 Klukkustundir
00 Mínútur
00 Sekúndur

Bleikar fréttir

14. desember 2023 : Bleikasta slaufan sló í gegn

Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir, hönnuðir Bleiku slaufunni 2023, afhentu Krabbameinsfélaginu 13.475.000 krónur sem söfnuðust með sölu á Sparislaufunni.

Lesa meira

14. desember 2023 : Metta Sport styrkir Bleiku slaufuna um 1.432.064 kr.

Krabbameinsfélagið þakkar Metta Sport og viðskipavinum kærlega fyrir stuðninginn, hann skiptir svo sannarlega máli.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Við þurfum að þora að stíga fram og segja frá því hvernig okkur líður

Josina Wilhelmina Bergsøe er skartgripahönnuður, rithöfundur og fyrirlesari með persónulega reynslu af langvinnum og síðbúnum aukaverkunum eftir krabbamein. Josina greindist með brjóstakrabbamein árið 2010 og hefur frá þeim tíma unnið markvisst að því að auka skilning á veruleika þeirra sem greinast með krabbamein. Hún hefur einnig verið ötul talskona þess að auka sýnileika sjúkdómsins í samfélaginu og breyta staðalímyndum um krabbameinssjúklinga. Við ræddum við Josinu um lífið eftir krabbamein, sem hún tekst á við af næmni og með húmor og lífsgleði að leiðarljósi.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : Hagkaup styrkir Bleiku slaufuna um 2 milljónir

Þjóðin hef­ur lagst á eitt í söfn­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags­ins í ár og í lok október af­hentu for­svars­menn Hag­kaups ávís­un upp á tvær millj­ón­ir króna sem söfnuðust til styrkar Bleiku slaufunni í versl­un­um fyr­ir­tæk­is.

Lesa meira

8. nóvember 2023 : 2,2 milljónir frá Orkunni til Bleiku slaufunnar

Saman söfnuðu, Orkan og viðskiptavinir 2,2 milljónum króna handa Bleiku slaufunni. Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhópi Bleiku slaufunnar gáfu 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Orkan jafnaði síðan upphæðina sem viðskiptavinir söfnuðu. Auk þess runnu 5 krónur af öllum seldum lítrum á Bleika daginn til átaksins.

Lesa meira

Sjá allar fréttir og viðburði


6.115

er árlegur meðalfjöldi þeirra skipta sem ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita stuðning og ráðgjöf.

916

er fjöldi þeirra kvenna sem greinist árlega með krabbamein hérlendis.

455

milljónum veitt úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 47 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2023.

Stöndum saman og virkjum vináttuna!

Vilt þú vinna vinkonuferð í Bláa lónið?
Þátttaka kvenna á Íslandi í skimun fyrir krabbameinum hefur minnkað síðustu ár og hvetjum við ykkur til að fá vinkonur ykkar til að mæta í skimun. Því eitt er víst að samstöðukraftur kvenna er magnaður. Það sýna vinkonuhópar sem halda hópinn, jafnvel svo áratugum skiptir, í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning á erfiðum stundum og hvatningu þegar á þarf að halda. Skráðu þig í vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar og ein heppin vinkona verður dregin út og getur unnið ferð í Bláa Lónið ásamt flotmeðferð og flothettu fyrir 6 vinkonur!


Skráðu þig

Bleika slaufan 2023

Bleika slaufan í ár hönnuð af gullsmíðameisturunum Lovísu Halldórsdóttur Olesen og Unni Eir Björnsdóttur


Vinir slaufunnar

Monstri: Ullar­skrímsli

„Ég er að framleiða lítil ullarskrímsli sem ég er að selja í verslunum. Ég hef þegar sent nokkrum verslunum bleik skrímsli í tilefni af bleikum október. Mig langar til þess að 10% af söluverðinu mínu renni til styrkar Krabbameinsfélagsins”.

S4S - Skref fyrir skref

Styrkja Krabbameinsfélagið um 100.000 krónur og senda út fréttabréf með bleikum vörum og í leiðinni hvetja viðskiptavini sína til að leggja málefninu lið.

Papco

Papco fyrirtækjaþjónusta framleiðir bleikar brjóstaservíettur og dispó servíettur til styrkar Bleiku slaufunnar en 10% af sölunni fer til átaksins.

Hagkaup

Hagkaup er stoltur söluaðili Bleiku slaufunnar og styrkti átakið einnig með því að bjóða viðskiptavinum sínum að leggja söfnuninni lið í verslunum sínum. Viðskiptavininum var boðið að bæta 500 krónum við innkaup sín sem rann til söfnunarinnar og Hagkaup lagði til aðrar 500 krónur í mótframlagi.

 

Vöffluvagninn

Í tilefni af bleikum október ætlum við að bjóða upp á ljúffenga bleika vöfflu með jarðarberjaís og meðlæti að eigin vali 500 kr. af ágóðanum af bleiku vöfflunni ásamt öllum öðrum vöfflum með ís rennur til Bleiku slaufunnar.

Bakarameistarinn

Bakarameistarinn lætur 15% af ágóða allra seldra bleikra vara renna til Krabbameinsfélagsins, s.s skúffukökufleki með bleiku slaufunni, aðrar bleikar kökur, bleikir snúðar og kleinuhringir. Hægt að forpanta á bakarameistarinn.is. Á Bleika daginn verður að sjáfsögðu mikið úrval af bleiku bakkelsi í verslunum Bakarameistarans.

Brimborg

Við verðum með þennan fagurbleika Ford Mustang Mach-E á götunum á næstu dögum í reynsluakstri og hann mun láta gott af sér leiða og fyrir hvern reynsluakstur á honum rennur andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins. 

Babyfoot fótameðferð

300 kr. af hverri seldri einingu af BabyFoot fótameðferð rennur til Bleiku Slaufunnar. 

Lindex

Lindex mun gefa 10% prósent af sölu á brjóstahöldurum í október.

Orkan

Verum bleik allan ársins hring með  Orkulyklinum í styrktarhóp Bleiku slaufunnar. Viðskiptavinir gefa hlut af afslætti sínum til málefnisins og Orkan jafnar á móti.  

Fyllum á tankinn saman fyrir Bleiku slaufuna.

Hjá Höllu

Bjóða upp á rauðrófusafa sem er fallega bleikur á litinn og mun allur ágóði af sölu hans renna til Bleiku slaufunnar í október.

Wrinkles Schminkles Iceland

50% af allri sölu í október rennur bent til Bleiku slaufunnar.

Sjá alla samstarfsaðila


Konur og krabbamein

Verum til í að fræðast og fá hagnýt ráð.

Skimanir skipta miklu máli

Ert þú meðvituð um mikilvægi krabbameinsskimana?

Þú getur dregið úr líkunum á krabbameini

Taktu góðar ákvarðanir fyrir þig og þína

Þekkir þú einhvern með krabbamein?

Hvað getur þú gert þegar vinur, ættingi eða vinnufélagi greinist með krabbamein?

Hefur þú greinst með krabbamein?

Verum tilbúin að nýta ráðgjöf og upplýsingar sem geta gagnast okkur.  

Hefur þú misst ástvin úr krabbameini?

Vantar þig upplýsingar og ráðgjöf?


Sögur kvenna

Kynnstu sögum 12 kvenna